Úrsláttarvélar
Klaki á nokkrar útfærslur á úrsláttarvélum.
Myndband af einni slíkri má sjá að neðan undir “Nánari lýsing”.
Allar útfærslurnar eru hannaðar með plássnýtingu í huga.
Kostir þeirra eru þeir að öskjurnar koma úr vélinni í sömu hæð og pökkunarborðið.
Við það geta sparast 2 færibönd, miðað við hefðbundnar úrsláttarvélar og plássið sem þau taka.
Einföld vél er fyrir eina lengd af pönnum á meðan tvöföld vél tekur tvær mismunandi lengdir og þjónar þannig tilgangi tveggja véla.
Einungis nokkrar sekúndur tekur að skipta á milli pönnustærða í tvöföldu vélinni.
Vélarnar lyfta öskjunum uppúr pönnunni með 10-16 sívalningum, sem gerir mögulegt að nota vélina einnig fyrir 12 punda pakkningar.
Afkastagetan er um 10 pönnur á mínútu.
Vélarnar skila tómum pönnum frá sér að aftanverðu á þar til gert færiband, sem flytur pönnurnar tómar til baka.
Vélarnar hafa reynst fara afar vel með pönnur.
Einnig er hægt að fá pönnuþvottavél sem þrífur pönnurnar eftir úrslátt.
Einföld vél
Efni: AISI 304
Yfirborð: Rafætt
Lengd: 1730 mm
Breidd: 1067 mm
Hæð: 1150 mm
Tvöföld vél:
Efni: AISI 304
Yfirborð: Rafætt
Lengd: 1800 mm
Breidd: 1067 mm
Hæð: 1790 mm
Vöruflokkar: Vinnslubúnaður töggum: Frystibúnaður, Pönnur, úrsláttarvél, úrsláttarvélar